Neskirkja
ProtestanteReykjavik, Islândia
📍 Neshagi 1
Neskirkja er í Nesprestakalli, Reykjavíkurprófastsdæmi vestra. Kirkjan var vígð á pálmasunnudag þann 14. apríl 1957. Sr. Ásmundur Guðmundsson (1888-1969), biskup, vígði kirkjuna. Neskirkja er í Nessókn og sækir nafn sitt til landnámsbýlisins Nes við Seltjörn þar sem talið er að kirkja hafi staðið frá því á 11. öld. Síðasta kirkjan sem stóð á Nesi var aflögð með konungsúrskurði 1797 þegar sóknin var sett undir Reykjavíkursókn, en þá sóttu allir íbúar Reykjavíkursóknar nýstofnaða Dómkirkju í Reykjavík.. Nessókn var stofnuðu þann 21. október árið1940 þegar Reykjavíkursókn var skipt upp í Dómsókn, Nessókn, Hallgrímssókn og Laugarnessókn.
Da Wikipédia · CC BY-SA 4.0 — Ler na Wikipédia
Abrir no mapa →Church official? Correct or claim this page